29.07.2005 17:02:23 / joimagg

Djöfulsins Visa

Jæja þá kláraði ég að borga seinasta Visa reikninginn sem ég ætla mér að borga á þessu ári vonandi :-/ Þetta er á svona greiðsluseðli sem ég millifæri í netbankanum og þegar ég var að slá inn allar tölurnar þá tók ég eftir einu...BANKIHB: 052666...666, the "number of the beast!". Þar hafiði það, VISA er verk djöfulsins:klikk:

Hvað er ég búinn að gera í sumar: vinna, út á lífið um helgar og Roskilde festival...
Hvað ætla ég að gera í vetur: vinna og safna mér fyrir fluginu...einhverstaðar...

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.05.2005 18:19:10 / joimagg

Sól, svalir, blogg

Sit hérna út á svölum í yndislegu sólinni, praise the lord fyrir þráðlaust internet! Já seinasta blogfærsla fór nú eitthvað um þúfur en þið ýmindið ykkur bara restina. Helgin var góð, útskriftarveisla hjá Smára á föstudag, var reyndar bara low profile og drakk bara 3 öllara bara fyrir svefninn...helvíti gott. Stuð í fólkinu, hitti kærustuna hans Sigfúsar frá Danmörku sem var skrítið en stuð. Kári sýndi videoið sem hann gerði fyrir Smára í útskriftargjöf, sýrustigið á því var mjög hátt...jafn hátt og það er að búa út á landi,hehe. Var svo helvíti duglegur í gær að ég hjólaði allan daginn næstum því og fór í sund á eftir, ekkert pottadæmi sko, synti heilar 6 ferðir takk fyrir. Svo var tekið á því um kvöldið. Carina norska vinkona okkar sem var með okkur í Grundtvigs er nefnilega í heimsókn og hittum við allar stelpurnar frá DK heima hjá Ellu..mjög gaman að hitta þær allar aftur, felt like DK (gæti verið lag)."I was listening to Nick & Jay...and it almost felt like back in DK". Komiði svo með restina. Þegar við mættum þá var liðið bara á leiðinni í bæinn þannig ég þurfti að stúta öllu búsinu á hálftíma eins og sannur Íslendingur...varð alveg svaðalega hress eftir það. Var smáveigis vandamál, Ella og Solla voru ekki með skilríki...eru yngir sko..þannig að þegar við reyndum að komast inn á Ara þá sögðum við að Ella og Christian kærasti hennar væru danski vinir okkar og Ella var eitthvað að babla á dönsku þarna...virkaði ekki. Svo stóðum við fyrir utan og vildi svo til að vinkonur hennar Ellu komu labbandi út og sögðu "Halló Ella, hvað segiru gott"...beint fyrir framan dyraverðina...hehe. Hún labbaði skömmustuleg í burtu. Carina var blindfull eins og vanalega og þurftu Linda og Erna að passa upp á hana. Lúserarnir úr Víking Ólafsvík sem töpuðu fyrir fyrrverandi liði mínu Víking Reykjavík voru allsráðandi á Hverfis og skaut ég úr tvíhleypunni óða á þá. Kvöldið endaði svo með ferð á Devitos og svo skutlaði Erna skutla mér heim. Ég er ekki búinn að taka einn leigubíl síðan ég kom heim...ég hreinlega neita að gera það, enda á ég engann penis...pening. Hei, haldið áfram að kíkja á síðuna mína, þótt að ég skrifi eiginlega aldrei á hana.

Catching the moment: Fullt af krökkum í leik hérna í garðinum í Álfheimum, en ein lítil stúlka situr döpur í rólunni því hún er handleggsbrotin...litla greyið. Hefði átt að passa sig bara!


» 101 hafa sagt sína skoðun

16.05.2005 21:51:29 / joimagg

Heimil lending

Gúígg...smá reykur...og maður er lentur. Já tekur smá tíma að koma sér á jörðina og er það lokaskrefið í því að skrifa hérna í dagbókina mína. Hvað er að gerast?jaa...maður er allaveganna kominn með vinnu hjá Samskipum við að afferma vörubíla, tiltölulega lágr heilasköðunarstuðullinn á þeirri vinnu og líður hratt þannig að að er fínt. Maður er alveg agalegur, erfitt að finna sér eitthvað að gera þegar allir voru í prófunum en loksins kláruðu þessir dúddar núna um helgina og var hrunið í það með þeim í verfræðideildinni á laugardag. Byrjaði heima með BBQ veislu heima hjá Hauki ísklifrara og Grafarvogs-suddunum. Það var ekkert annað en tekinn 1 1/2 Trölla Túlli takk fyrir...djöfull saknaði ég hans maður. Svo var það bara beint niðrá Hressó og það sem var öðruvísi en venjulega þá vorum við bara á þeim stað allt kvöldið og skemmtum okkur líka svona drulluvel. Manni langaði bara ekki að kíkja neitt annað. Hitti hana Ástu vinkonu Cathrine úr Krogerup sem var sehr nett...skrítið að hitta Íslending á Íslandi sem maður kynntist í útlöndum! d

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2005 16:21:39 / joimagg

Heima

Það er búið að setja nýjar myndir á verðlistaskiltin á KFC...allaveganna síðan ég fór þangað seinast fyrir hálfu ári...helvíti nett! Fékk mér einn þynnkuborgara, Birkir frændi var 27 ára í gær og fór ég með honum og einhverjum flugdólgavinum hans nirrí bæ. Labbaði svo einn heim enda kominn í ágætis æfingu í því!

Heyriði, ég skulda smá ferðasiögu...held að flestir séu orðnir leiðir á löngu færslunum mínum þannig ég ætla segja frá þessu bara í stikkorðum...

Þegar seinast var frá horfið sagði ég nú frá henni Fífí og Gúnda í Feneyjum og eftir það var haldið til Nice í Frakklandi, hér koma punktarnir...

- Gömul klikkuð kelling sem átti hostelið sem kallaði sig "the pink lady"??? Hún hélt uppi löngum samræðum við okkur á frönsku og við jánkuðum alltaf eins og við skildum allt sem hún sagði

- Komst að einu, ég elsa frakka sem kunna ensku jafn mikið og ég hata frakka sem kunna ekki ensku!

- Nice var nokkuð flott, hélt að ströndin væri aðeins meiri sandur...meiri svona litlir steinar en það var sól og hiti og böðuðum við okkur eitthva...Garðar þoldi ekki hitann og hékk oftast í Virgin Megastore á meðan ég og Valur vorum í sólbaði...hehe.

- Vorum úrvinda eiginlega þannig við nenntum ekkert að djamma þarna, og auralausir einnig...

- Lentum í enn einni fáránlegri tilviljuninni...hittum Sigurlaugu sem var með okkur í Langholtsskóla bara þarna á götunni fyrir utan hostelið..."What are the odds" copyright Sibbi 2000. Þá eru þær orðnar þrjár, Valur og Garðar hittu hann Flosa í einhverju úthverfi í Köben fyrir jól, við hittum svo Íslending í pínulítilli búð í Búdapest rétt hjá þar sem við bjuggum í íbúahverfi, ekki miðbænum og svo þetta.

- Var kominn fiðringur í mann að fara til Kúbu þannig að maður var eiginlega bara að bíða eftir að komst þangað.

KÚBA

Já ég fór semsagt á mínum eigin spítum til Kúbu að heimsækja norsku jenntuna mína hana Cathrine sem er þarna úti að læra spænsku og búin að vera í 3 mánuði...er reyndar að fara heim í dag.Hérna koma Kúbu púnktar, verða doltið margir reyndar ;)

- Við gistum aldrei á hóteli, gistum alltaf á nokkru sem heitir Casa Particular sem er heimagisting sem að allir Kúbanar mega hafa á heimili sínu og maður borgar 20$ á nótt fyrir herbergi með dobbel bed og morgunmat...ekki jack shit!!!Og svo lifir maður inn á heimilinu þeirra og kynnist kúbönsku fjölskyldulífi sem er alveg frábært!

- Fyrstu nóttina vorum  við í Havana, kom um kvöldið föstudaginn 8.apríl og við kíktum aðeins út á lífið niðri í bæ...mjög sérstakst andrúmsloft sem að maður fékk alveg um leið þarna

- Eins og þið kannski vitið þá mega Kúbanir ekki fara úr landinu skv. lögum í landinu, aðeins íþróttafólk og atvinnu tónlistarmenn og soddan fólk má fara úr landinu. Við lentum á einum glímukappa þarna um kvöldið sem vildi endilega tala við okkur, stoltur af því að kunna ensku enda nánast enginn sem kann ensku þarna og mjög stoltur að hafa farið til evrópu keppnisferðum sínum. Hann vildi endilega sitjast inn á bar með okkur og spjalla,virkaði eins og hann væri eitthvað að plata okkur í eitthvað þannig við neituðum því...en eftir að hafa verið þarna þá sá maður eftir að hann vildi örruglega bara spjalla, það eru allir svo opnir þarna og vilja allir hjálpa manni.

- Lentum svo á gömlum blindfullum kalli í hvítum ógeðslega svölum jakkafötum frá 6.áratugnum sem að fór að reyna við Catrhine og tók mig aðeins afsíðis á eintal "el hombre" eins og hann sagði og spurði mig mjög kurteisilega hvort hann mætti stela kærustunni minni,hehe...nettur kall!

- Annan daginn tókum við rútu til aðaltúristabæjarins í Kúbu, Varadero og er með flottustu strönd sem ég hef séð! Castro segir að þar megi ekki vera heimagisting þannig við hefðum átt að gista á hóteli,en Cathy var reddaði ólöglegri heimagistingu þar í gegnum kallinn á heimilinu hennar...reyndar hefði það ekki verið mikið mál fyrir hana því hún er með kúbanskt vegabréf meðan hún er þarna en ég hefði getað þurft að borga marga dollara,en við sluppum. Nokkrar reglur sem við þurftum að fara eftir, vera sem minnst með töskurnar okkar í kringum húsið, reyna að haga okkur eins og við þekktum heimilsfólkið sem gekk ágætlega og aldrei taka leigara að húsinu.

- Varadero var alveg rosalega flottur bær, bara svona eins og Spánn eða eitthvað, en Cathy minnti mig á að þetta er túristabær, bærinn sem hún býr í, Cienfuegos er alls enginn túristabær og fékk maður Kúbu í æð þar!

-Fórum þangað með ólöglegum leigubíl sem er mikið um þarna, þeir reyna að næla sér í eins marga auka aura og þeir geta, borguðum mánaðarlaun læknis til að komast til bæjarins sem eru 25 dollarar, ca. 1800 kall fyrir 3 klst. keyrslu.

- Gistum í heimagistingu stutt frá þar sem Cathy býr. Þarna var ég hina 11 dagana sem ég var á Kúbu.

- Maturinn á veitingastöðum á Kúbu var ekki sérlega góður en ef maður borðaði í heimahúsi þá fékk maður dýrindis mat, gerðum það nokkrum sinnum. Allir kúbanir mega vera með heima "reastaurant" með hámark 5 borð og svo pikka þeir mann bara upp á götuni og spyrja hvort maður vilji borða, kostar 5$ fyrir eins mikið og maður getur í sig látið. Fékk besta fisk á ævinni þarna...mmm!

- Fórum út á hverju kvöldi, allir Kúbanir eru úti á kvöldin, húsin eru aðeins til að sofa og elda mat í, ef þeir eru ekki að gera það þá eru þeir úti á götu saman heilu fjölskyldurnar og vinir! Svo heyrir maður nánast alltaf tónlist, salsa, rúmba eða raggaton og svo dansar fólkið út á götunum.

- Castro er með beina sjónvarpsræðu á hverju einasta kvöldi sem geta oft farið upp í 6 klst. langt fram á nótt...og fólkið er sumt að horfa á þetta, þegar maður labbaði fram hjá húsunum sem eru nánast opin upp á gátt alveg, gluggar og hurðir, sá maður stundum fólkið fyrir framan skjáinn og Fidel kallinn að tala við fólkið sitt. Þetta er ekki eins og þið ýmindið ykkur kannski, hann að kalla baráttuóp og hvetja fólkið, hann situr þarna og maður sér hvernig hann er að hrörna með hverri sekúndu nánast, og útskýrir hvert einasta smáatriði fyrir fólinu, plön og ákvarðanir dagsins...hans plön, hans ákvarðanir og jafnvel ný lög sem HANN setti, t.d. þá er kallinn að drepast úr krabbameini, í stað þess að segja starfsfólki sínu að reykja ekki í kringum sig eða banna reykingar í kringum sig almennt...þá setti hann bara lög yfir alla Kúbu að bannað sé að reykja innandyra! hehe Fleiri skemmtileg lög eru t.d. Dauðarefsing ef maður selur eiturlyf, lífstíðarfangelsi ef maður stundar vændi eða selur sig og ef Kúbanar svo rétt sem leggja fingur á túrista þá er það lífstíðarfangelsi! Þetta land lifir á túristum. Kemur ykkur kannski á óvart en Kúba er með eina lægstu glæpatíðni í heiminum og mjög öruggt að vera túristi þarna.

- Eitt það skemmtilegasta sem við gerðum þarna var að fara á Rúmba kvöld á einum stað sem er á hverju miðvikudagskvöldi þarna í miðbænum. Það var geggjað! Live salsa og rúmba spiluð og allir dansandi eins og vitleysingar. Það kunna allir að dansa þarna og fólkið er með gífurlega mikla tilfinningu fyrir tónlist, sviðið var eiginlega bara frjálst fyrir alla að koma upp og taka í eitthvað áslátturshljóðfæri eða syngja með...þvílík stemmning, ólíkt neinu sem ég hef á ævinni kynnst. Dönsuðum mikið þarna og allir norsku krakkarnir sem eru þarna einnig.

- Um helgarnar safnast allt fólkið saman á svona sjávarsíðugötu sem var bara rétt hjá húsinu okkar og sittur við árbakkann og drekkur kúbanst romm. Romm í kók eða Cuba Libre eins og hann heitir, það þýðir "Frjáls Kúba" og eins kaldhæðnislega og það hljómar þá er Coca Cola blandið í þeim drykk...sem er ekki hægt að fá þarna by the way...en þeir eru með sitt eigið Cola; TuKola...ef þið farið einhverntíman þangað ekki biðja um "Two Colas" því þá koma þeir bara með eina TuKola flösku, mjög heppilegt nafn. "Dos TuKolas por favor" ;)

- Já þetta er náttúrulega kommúnistaríki frá helvíti þetta land, allir jafnir, allir jafn fátækir þarna...en þó hafa ákkúrat nóg til að lifa skikkalegu lífi. Svo fá öll heimili gjöf frá ríkinu á þriggja mánaða fresti og var seinast hrísgtjónasuðutæki einhverskonar, skondið að sjá það einn á hverju einasta heimili. Fólkið reynir þá að fá eins mikinn pening úr túristum og auðið er enda eru þeir komnir með mánaðrlaun í venjulegri vinnu eftir eitt ólöglegt skutl á ströndina...reyndar er sér kúbanskur gjaldmiðill fyrir túrista sem fylgir gengi US dollarans og er 1$=25 kúbanskir pesos...og margt er verðsett þannig að það sem við borgum einn dollara fyrir borga kúbanir 1 peso þannig ekki eru þeir að kaupa mikið fyrir dollarann.

Ég féll alveg fyrir Kúbu og fer þangað aftur án efa og hvet ég ykkur til þess að heimsækja þennan yndislega stað á meðan hann er ennþá eins og hann er! Þetta er ekki eins dýrt og þið haldið og ekkert mál að plana svona ferð sjálfur án hjálpar ferðaskrifstofu.Flugið fram og til baka kostaði 40.000 kr. með Iberia frá Madrid, visa inn og út úr landinu kostar 5000 kr., samtals borgaði ég 130 dollara fyrir gistingu og morgunmat í 13 daga sem er 9000 kr...svo er þetta ódýrt land...til viðmiðunar kostar ein stór 750 ml flaska af Havana Club rommi 3 dollara eða 200 kr. =P

En ég er semsagt kominn heim og planið er að vera heima í sumar og svo er aldrei að vita hvað gerist næsta vetur, hef augastað á Noregi. Ég kom nú heim 22.apríl, var hérna í víkinni í tvo daga og sendur beint í sveitina að vinna marr, það var smá ástand og var ég þar í 1 1/2 viku en verð væntanlega hjá Samskipum í sumar. Er semsagt ekki búinn að hitta marga, en hlakka til að hitta alla aftur!


» 122 hafa sagt sína skoðun

05.04.2005 17:43:04 / joimagg

Rómantíkin hjá Gúnda og Fífí í Feneyjum

Ég hef ákveðið að skrifa þessa færslu sem einstaklingurinn Gúndi sem er 23 ára og kærastan hans eru Garðar og Valur samansteyptir í kvenmannin Fífí sem er í stærri kantinum. Hún er fyrsta kærastann hans Gúnda og er hann doltið spenntur út af því...doltið upptjúnaður því þau eru í sinni fyrstu útlandaferð saman. Enjoy!

Já það er ekki hægt að segja annað en að við Fífí séum alveg í rómantískri ástarvímu hérna í Feneyjum...við erum búin að eiga alveg yndilslegar stundir...í gær löbbuðum við út um alla eynna og villtumst eiginlega, en Fífí var svo glögg að finna leiðina aftur að hótelinu á einhvern ævintýralegan hátt...hún er svo glögg. Eftir það fórum við upp á hótelherbergi og kúrðum aðeins upp í rúmi og skiptumst á kossum...híhíhí. Svo þurfti Fífí að fara á klósettið...þið vitið hversu lengi hún getur verið að gera númer 2, hún er alveg jafn lengi að athöfninni og við hin en svo finnst henni gott að sitja bara á setunni og lesa bók í svona 15-20 mín. Ég lét það ekki fara í mig og fylgdist bara með páfaathöfninni á BBC News á meðan...allri. Megi hann Jóhannes hvíla í friði. En jæja, um áttaleytið fórum við og fengum okkur að borða á fínum Ítlölskum veitingastað sem ég valdi...ég fékk mér pasta en Fífí fékk sér pizzu, hún bólgnar víst upp í tungunni við að borða pasta, læknarnir hafa ekki komist að af hverju. Við drukkum svo rauðvín með matnum, í anda rómantíkarinnar sem er allstaðar í loftinu hér í Feneyjum. Við vorum bæði þreytt eftir matinn þannig við fórum bara aftur upp á herbergi og lásum í bók og tókum einn Frúin í Hamborg...hún Fífí vann, hún vinnur alltaf!...hún er svo klár elskan. Svo núna í dag fórum við í sturtu um morguninn...nei ekki saman óþekktarangar...við komumst ekki bæði fyrir! Löbbuðum svo í hinn enda eyjarinnar, aðeins öðruvísi leið en í gær, keyptum okkur miða í strætóinn hérna...sem er bátur...hahaha...fannst ykkur þetta ekki sniðugt!Hérna er annar, ef maður pantar TAXA, þá fær maður leigu-bát...hahaha...bát...ekki bíl...hahaha...hmmhmm, já, þið skiljið! Hvar var ég. Já, við silgdum með bátnum yfir á aðra eyju, og síðan til baka og í gegnum hinn fræga Gran Canale sem liggur í gegnum eynna. Ohh, það var svo rómantískt, you just had to be there...you wish,hehe! Fengum okkur svo pizzu, ja, allaveganna ég, hún Fífí mín borðar nú alltaf á við tvo fullorðina menn þannig hún fékk sér tvær. Jæja, nú gef ég aðeins í, keyptum kort til að senda mömmu og pabba...og tengdó náttúrulega...hahaha, fyndið að segja þetta. Svo sátum við bara saman í sólbaði í svona klukkutíma og erum nú hérna á internetcafé...held að við verðum eitthvað hérna áfram því að Fífí er að tala við einhverjar 7 vinkonur sínar og neitar að yfirgefa staðinn...það er svosem allt í lagi því að við fáum stúdentaafslátt...hahahahaha. En ég fer bráðum að grípa í taumana...í alvöru...því að hún lofaði að horfa með mér á Juventus - Liverpool á barnum hérna við hliðina á sem byrjar eftir klukkutíma...ég þarf að gefa henni nudd í staðinn í lestinni til Nice í nótt í staðinn,híhí. En jæja ég kveð í bili...ævintýri Gúnda og Fífí halda áfram í Frakklandi...hlakka til að segja frá meiru. Fífí biður að heilsa.


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.04.2005 17:35:45 / joimagg

Thetta atti ad fara inn 30.03.05

Ja vid erum komnir a strondina i Split Kroatiu helkottadir a thvi med solarvorn (15 fyrir likamann) i annari og solarvorn ("Baby faces and tender places" 50 fyrir andlitid) i hinni takk fyrir. Komum herna a sunnudag og erum med okkar eigin litla studioibud med eldhusi og alles. Vid bunir ad fa oged af thvi ad borda uti thannig vid eldum allan mat nuna sjalfir. I gaer voru thad girnilegar kjuklingabringur a la Mediterrainian; ponnusteiktar kjuklingabringur kryddadar med salt n pepper. I kvold er thad svo pasta carbonara beint ur pakkanum og steiktir pylsubitar med...yummie!!! Markmidid okkar er ad gera sem minnst herna, erum bara ad tjilla a litlu strondinni sem er herna, forum i bio i fyrradag, kiktum a bar i gaer og svo erum vid bara ad lesa okkar baekur a fullu. Eg er ad leyta mer ad bok til ad lesa en Gardar er ad lesa Deception Point eftir Dan Brown sem eg var ad klara...massagod bok, sami hofundur og DaVinci lykillinn, svo er Valur ad lesa hvorki meira ne minna en sogu Evropu a 20.oldinni...menningarlegra verdur thad ekki! Maelidi med einhverri bok sem eg aetti ad reyna finna herna i bokabudunum? En a morgun er thad planid ad vakna snemma og leigja scooter og keyra eitthvad herna med strandlengjunni sudur, thad er alveg gifurlega fallegt herna, eyjar ut um allt sem ad haegt er ad taka ferjur yfir a, gerum thad eflaust lika.Svo til thess ad updeita ykkur adeins a planinu tha er thad Ljubliana Sloveniu a laugardag, ein nott thar og sidan nzr afangastadur; Feneyjar thar sem eg held ad vid verdum 1 jafnvel 2 naetur ef vid faum odyra gistingu. Paelingin ad sleppa Milano og fara bara beint til Nice thann 6.april thegar Interrail kortid okkar rennur ut. Uff thetta lidur hratt marrr.

Thar sem eg hef ekkert komist tolvu fyrr en nuna tha aetla eg adeins ad fara yfir thad sem vid erum bunir ad gera...

Ja vid forum a skidi/snjobretti i Bulgariu a staersta skidasvaedi theirra og var thad bara nokkud stort. 3 storar stolalyftur og svo klafur upp i topp fjallsins sem var i 3000 m haed og voru thar svo einhverjar 4 diskalyftur i mjog skemmtilegar og opnar brekkur. Brekkurnar nedar voru adeins formfastari, bara svona slodar nidur med tre allt i kring. Faerid var svona agaett bara, doltid blautt en madur hefur nattla aldrei rennt ser nidur svona storar brekkur thannig thetta var faranlega skemmtilegt. Vid pontudum nu herbergi a einhverju hoteli tharna sem var sidan ofinnanlegt thannig vid thurftum ad gista a einhverju eldgomlu draugahoteli sem slapp svosem alveg. Komum um morguninn og skidudum fra 12-16 i sol og blidu, neyddumst til thess ad kaupa okkur toffarasolgleraugu...Okey, eftirliking af Okley...bididi bara eftir ad sja myndirnar, thid verdid hraedd vid okkur. Valur og Gardar leigdu ser skidi en eg snjobretti...enda 100 sinnum skemmtilegra. Vid fundum karaoke bar tharna sem vid forum a um kvoldid og var bara rifandi stemmning thar enda husid fullt af bretum...ekki verra. Svo hittum vid akkurat a happy hour thannig ad ekkert var sparad i drykkjunum. Doltid skritid var ad madur borgadi mismunandi mikid fyrir "Screwdriver" og "Vodka in orange juice" thratt fyrir ad vera sami drykkurinn, ef hann het Screwdriver kostadi hann vist eitthvad meira...vid heldum okkur bara vid hinn. En eftir ad hafa hellt i okkur nog var komid ad thvi ad trylla lydinn, vid byrjudum a thvi ad fara allir thrir og tokum lagid "Lemon Tree" sem allir muna nu eftir...allir a stadnum sungu med. Sidan var thad ad sjalfsogdu eitt solo lag a kjaft, eg tok Clapton lagid "Wonderful Tonight" til minningar Grundtvigs, Valur tok "She loves you (yeah yeah yeah)" og Gardar song "Yellow Submarine" og vard allt vitlaust tha, allir bretarnir thurstu upp a svid og vid lika og soloid breyttist i heljarinnar fjoldasong...kun karlmenn. Helviti skemmtilegt kvold og eigum vid eitthvad af thessu kareoke deami a videoi...reynum ad koma thvi a netid...eda ekki ;)

En daginn eftir var svo bara skidad/brettad allan daginn og ekkert slakkad a. Gardar sat reyndar hja og chilladi i skidathorpinu. En eg og Valur skelltum okkur upp i 3000 metrana og reyndum ad fara i allar brekkurnar. I enda dagsins var Valur i svo miklum kvolum i laerunum ad hann var alveg ad deyja "Mesta pining sem eg hef a aevinni upplifad seinasta ferdin" Valur Thrainsson Borovets, Bulgariu 2005

Um kvoldid tokum vid svo leigubil aftur til Sofiu og fengum sma fraedslu um kommunismann fra bilstjoranum sem upplifdi thetta allt, nokkud af thvi sem hann taladi um; Bannad ad vera med sitt har, bannad ad hlusta a ameriska tonlist og rafmagn a daginn var eftirfarandi...1 klukkustund rafmagn, 3 klukkustundir ekkert rafmagn o.s.frv. Hann var meira en anaegdur ad vera losnadur undan thessu. Tel mig nu vera vinstri sinnadur en kommunismi var bara god hugmynd sem var framkvaemd kolvitlaust af spilltum monnum. En thegar komid var a lestarstodina bidu okkar ekki godar frettir, lestin sem atti ad fara med okku a naesta afangastad; Belgrad biladi a leidinni og kemur ekki. Vid nenntum ekki ad fara aftur a hostelid i Sofiu thannig vid tokum skyndiakvordun um ad taka bara einu lestina ut ur landinu sem var til Thessonokili i Grikklandi, 8 timar...vorum thar i 3 tima og skodudum midbaeinn...sem ad var mjog ospennandi...tokum sidan 12 tima lest thadan beint til Zagreb. Hefdi viljad sja Belgrad en vildum na landsleiknum Kroatia - Island i Zagreb sem var tridjudaginn 27.mars og komum vid til Zagreb akkurat thann dag um hadegisbil.

Svafum ur okkur lestarthreyuna a hosteli sem sem kemur sterklega til greina sem "Hostel ferdarinnar", mjog kruttlegt og gott andrumsloft, var fritt internet a medan vid vorum thar og stort sjonvarp i sjonvarpsherbergi fyrir alla. Forum svo og sottum midana okkar a leikinn sem var i bodi KSI...marserudum svo nidur a stadium med bjartar vonir sem attu eftir ad verda mardar nidur stuttu seinna. Thad voru svona 20 ahorfendur ad stydja Island med okkur talid og skemmtilegt ad segja fra thvi ad eina folkid sem var virkilega komid thangad til thess ad sja leikinn voru 3 bretar sem fara vist a alla landsleiki Islands...ekki spyrja mig af hverju og svo var thad einn Thjodverji sem hafdi att heima a Islandi einhverntiman...allir Islendingar sem voru tharna voru bara heppilega i nagrenni eda atti heima i landinu og akvad ad fara a leikinn vist ad KSI baud brusann. Bretarnir hofdu farid a 11 leiki og aldrei sed Island vinna...football is life, life is football...k'satt!? Stemmningin i Krootunum var serstok, their eyddu meiri orku i ad oskra einhvern song um ad fyrrverandi landslidsthjalfarinn theirra vaeri hommi heldur enn ad hvetja lidi sitt afram...thetta for thannig fram ad ein stukan oskradi "Whatshisname..." og tha oskradi hin a moti "...er hommi". Mjog fyndid! Vid skyldum thetta nattla ekki en thad var einn Kroati sem sagdi okkur thetta. Um kvoldid fjolmenntu svo yngri kynslod studningsmanna Islands sem samanstod af okkur thremur, einum odrum skritnum jafnaldra okkar, einu islensku pari fra thyskalandi, einni islensk/franskri stelpu sem byrj i Zagreb og sidan svona 5 adrir sem annad hvort heldu eda oskudu thess ad their vaeru Islendingar...allra thjoda kvikyndi. Freaddist dalitid um Kroatiu og hvernig their hugsa af stelpunni sem byr thar, hun lysti theim mjog bitru folki vegna thess ad theim finnst theim hafa misst af vestraenu kapitalista lestinni sem their vilja vera partur af, samt eru their of stoltir af thvi ad vera sin eigin thjod nuna til thess ad ganga i Evropusambandid...thannig doltid blendnar tilfinningar tharna. Svo skaut hun thvi einnig ad ad thad er nattla mikid hatur a milli landanna tharna a Balkansskaganum og thess vegna eitthvad um nynasisma hja yngri kynslodinni, sem vid tokum sidan vel eftir thegar vid komum til Split, langflestir krakkar minntu a Mansonista, svartklaedd me hringa allstadar og stelpurnar med dokkan augnskugga undir augunum...a thessum solarstad, doltid svart og hvitt! En annad mjog skemmtilegt kvold og gaman ad spjalla vid odruvisi folk um odruvisi hluti en madur a ad venjast.  Daginn eftir la leidin sidan til Split sem eg var adeins buinn ad stikla a her fyrir ofan...en skrifa meira um thad sidar.

Kvedja fra Feneyjum thar sem vid komum i morgun 4. april. Romantisk borg, verst ad madur er bara med 2 odrum pungum herna, en vid hofum thad samt mjof romantiskt saman vid pungarnir.

Kallarnir.Evropa...yfir og ut


» 106 hafa sagt sína skoðun

22.03.2005 20:49:34 / joimagg

Sofia koma a ovart

Ja tha erum vid bunir ad vera labbandi um Sofiu i allan dag. Tokum naeturlest (ad sjalfsogdu) fra Bukarest um 19 leytid og komum til Sofiu um klukkan 6 um nottina. Vid pontudum svefnklefa sem i fyrstu leit ut fyrir ad vera adeins med 2 rum, en svo thegar betur var ad gad var annad svona "retractable" rum lengst uppi i loftinu thannig ad madur myndi vaentanlega sopa loftid med nefinu. En thegar vid badum vordinn um ad setja rumid nidur spurdum vid hvort ad vaeri ekki bara thaegilegra ad opna bara naesta klefa og leyfa einum ad sofa thar, tha kom svona svipur a hann eins og hann vaeri ad rifja upp oll skiptin sem hann hefur thurft ad klifra tharna upp i rassgat og setja upp undrarumid...eg endurtok "just if its more comfarteble for you" og tha var hann sannfaerdur og opnadi klefann vid hlidina a og vid fatum svo opnad a milli, rosa cosy. Vid forum svo a hostelid sem vid vorum bunir ad finn sem heitir "Red Star Hostel", alveg a hreinu hvada stefna er thar a bae. Kriudum adeins, eg reyndar lengur en strakarnir thvi eg held eg hafi fengid mer of mikid af McDonalds a lestarstodinni i Bukarest...thid thekkid oll thessa ogedslegu tilfinningu! Sidan keyptum vid kort af baenum og lobbudum med thad um allan bae eins og ekta turistar. Helviti stoltur af okkur thvi vid nadum ad fara a alla helstu stadina, og verd ad segja ad thad var fullt, margt ad skoda herna og skemmtilegt ad vera turisti herna, mikid af svona solubasum, en ekki thessir typisku sem selja eitthvad serhannad turistadot heldur fullt af stridsminjadoti og kristnimyndum. Hingad aetla eg ad gera mer ferd aftur, an efa! Adan fengum vid okkur thriggja retta maltid a agaetis Itolskum stad fyrir 1600 kr. saman...bara snilld, ef thid aetlid in Interrail tha Austur Evropa malid. Madur hefur fullt af tima til thess ad skoda Vestur Evropu i framtidinni thegar madur verdur kominn med adeins feitari buddu. En eftir mat tha villtumst vid adeins herna en ad sjalfsogdu reddudu kallarnir.evropa ser ur thvi og fundu raudu stjornuna aftur.

En svo er thad vakna snemma a morgun, rutu upp i staersta skidasvaedid herna i Bulgariu sem heitir Borovets og er bara 70 km. fra Sofiu thar sem vid aetlum a skidi/snjobretti og gista svo a hoteli thar i fjallinu...mmm cosy, thad verdur sko fengid ser heitt kako annad kvold.

Kvedja...i bili


» 113 hafa sagt sína skoðun

21.03.2005 11:56:04 / joimagg

Kvedjum Bukarest

Jaeja tha er kominn timi til thess ad halda afram ferdinni. Vid forum med lest seinnipartinn i dag til Sofiu. Og samkvaemt nyjustu upplysingum tha thurfum vid ad vera komnir til Zagreb thann 26. ef vid aetlum ad na landsleiknum, thad aetti ad nast held eg. En herna i Bukarest er buid ad vera bara helviti fint. Ein skemmtileg saga fra fostudagskvoldinu, forum ut med einum kanadiskum gaur sem var herna a hostelinu, hringt i leigubil sem kom fljotlega. Sidan settumst vid upp i bilinn an thess ad vita nakvaemlega hvert vid vildum fara, vildum bara komast einhverstadar nidur i midbae...eftir sma samtal tha var akvedid ad segja bara "downtown". Leigubilstjorinn jankadi og endurtok ordid "downtown...yes?" vid svorudum "Yes we want to go downtown!". Bilstjorinn brunadi af stad og eftir svona 10 minutna keyrslu tha stoppadi hann a stad sem virtist nu ekkert vera neit rosalega i midbaenum, en jaeja hann hlytur ad vita svona, hann byr herna. Svo stigum vid ut ur bilnum og borgudum manninum sinar 50.000 lei (sem er 100 ISK) og snerum okkur vid...tha blasti vid okkur stort neon skilti sem stod a "Downtown"..."the best gogo club in Bucarest". Ad sjalfsogdu kiktum vid inn, letum taka okkur illilega a barnum thar sem vid borgudum 800.000 lei fyrir 5 bjora og skot, sem er bara eins og tilbod a L.A. Cafe heima en aetti ad vera 10 sinnum odyrara, plus ad tequillad var vatnsblandad, thad fannst vel thvi ad i stadin fyrir ad saltid og sitronan taeki bragdid af drykknum var thad i hina attina. Vid settumst nidur og litum adeins i kringum okkur, en byrjudum svo ad taka eftir thvi ad naestum thvi allar stelpurnar tharna inni horfdu a okkur eins og eitthva pis of meat. Mer leid hreinlega bara othaegilega! Tha sagdi kanadamadurinn sem ad er adeins vanari en vid, buinn ad ferdast um allan heim seinustu 5 ar, "Uuu, guys, looks like this is somekind of hooker bar". Vid sturtudum bjornum i okkur og drifum okkur ut...ut ur Downtown, hehe. En thetta var nu ekki algjort kludur thvi ad eins kaldhaednislegt og thad hljomar, tha var nu Downtown stadurinn i midbaenum. Thannig vid kiktum a nokkra fleiri stadi og skemmtum okkur bara helviti vel. A einum stadnum var skorad a mig i danskeppni, eg byrjadi ad breika eins og brjalaedingur og taka oll moovin sidan ur 7.bekk thegar madur var alltaf ad transa vid Prodigy...svo var komid ad felaganum, hann beygdi sig nidur i hnjanum og byrjadi ad dansa einhverskonar russadans,hehe. Eg gat ekki annad en hlegid og jatadi mig sigradan!

Segjum thetta nog i bili, eg aetla ad fara ut i banka adur en thad lokar og skipta tveimur 500.000 leium i einn million leia bill takk fyrir, sem eg aetla sko ad eiga. Ein milljon lei er 2000 kall, thetta er nattla alveg faranlegt land!

Heirru eg er buinn ad setja myndir inn af Interrailinu

Interrail I      Interrail Prag

Baeo


» 59 hafa sagt sína skoðun

19.03.2005 19:46:07 / joimagg

Uss enginn timi marrr

Djööööfull marr...hélt ég myndi hafa meiri tíma til þess að blogg í þessari Interrail ferð en svo virðist ekki vera. En við erum að skrá allt niður í dagbókina okkar þannig að kannski maður skrifi hana um á stafrænt form eftir ferðina og birti...planið var nú mínir kæru vinir að halda uppi allri ferðinni hérna en lítið komist í það...

En til þess að brusha upp á þetta aðeins þá ætla ég aðeins að fara yfir þetta...

Eftir Pólland fórum við aftur til Tékklands og vorum þar í 4 daga, mjög fínt, kann borgina vel utan að núna. Fórum á eitthvað skordýrasafn með köngulóm og sporðdrekum þar sem ég komst að því að ég er greinilega með fóbíu fyrir síðarnefndu!

Frá Tékklandi lá leiðin til Austurríkis sem var nú ekki í planinu, en Garðar þekkti tvær stelpur sem eru í skóla þar og að vinna þannig við ákváðum að skella okkur yfir helgina...12. og 13. mars. Fengum frábæran gran tour hjá Heiðbjörtu fyrrverandi bekkjarsystur Garðars úr Versló og svo heimtaði ég að fara í dýragarðinn sem á að vera sá elsti í Evrópu. Rosalega flott borg, fáránlega vel skipulögð og svo sá ég öll dýrin sem ég hef aldrei séð, fíla og allt þarna frá Afríku...doltið sorglegt samt að sjá greiin þarna lokuð inni, sérstaklega fílana :( Svo var tekið nett djamm báða dagana. Kynntumst fullt af skemmtilegu fólki sem voru herbergisfélagar stelpnanna.

Næst var Bratislava í Slóvakíu í einn dag...ekki mikið um þann stað að segja, ekkert ofsalega spes, en hann á eftir að verða meiri spennandi eftir nokkur ár held ég, mikil uppbygging í gangi. Merkilegasta sem við gerðum var að skoða kastalann þar sem var nú meira eins og virki...smygluðum okkur inn í guide túr og get sagt ykkur að hann brann árið 1800 og var endurbyggður á árunum 1950-1968...hehe, enjoy!;) Við gistum á mjög slísí hosteli þarna þar sem við borguðum allt of mikið miðað við hvað við fengum fyrir, illa lyktandi klósett og allir nágrannarnir í húsinu voru á móti hostelinu, var í blokk sko. Á hæðinni fyrir neðan voru plagöt út um allt; "STOP, Gabriel Hostel is braking the sanity and loudness rules of this appartment building and the residense of the building have been protesting it for a long time now...PLEASE LEAVE THE HOSTEL NOW!!!". Hehe, hann hló bara að þessu og sagði að fólkið væri "Crazy in the head" eins og Gabriel sjálfur orðaði það. Við sváfum okkar nótt þarna og drifum okkur svo bara áfram til...

...Búdapest. Þar biðu eftir okkur í skotgröfunum 3 yndislegir ungverskir vinir frá Grundtvigs með pakked skedúl fyrir okkur næstu daga. Við fengum ódýra gistingu á háskóla kollegíuminu hjá henni Júlíu sem þurfti reyndar að fara til Köben fljótt eftir að við komum. En parið Jósef og Lára voru með okkur. Við vorum frekar svekktir yfir því að geta ekki verið með þeim yfir helgi til þess að djamma með þeim...en Jósef leysti það vel, hann fór með okkur í skólabæinn þar sem hann er að læra og er með íbúð þar sem miðvikudagur er aðal djamm dagurinn...helvíti heppnir við. Lára komst ekki því hún þyrfti að læra þannig það var bara pulsupartý með vinum hans Jósefs og síðan á þennan líka helvíti flotta úndergrúnd stað sem spilaði bara ágætis tónlist...muniði eftir klarinette brass danslaginu sem var vinsælt þegar ég var í 7. eða 8. bekk...þeir spiluðu það...algjör snilld. Mikið dansað og Garðar var mjög vinsæll þetta kvöld...af karlpeningnum...hann minglaði við alla aðalgaurana sem Jósef og hans vinir þorðu ekki einu sinni að tala við og fékk þá alla til þess að splæsa öllara á sig. Plús einhverjum Ungverskum þyrluflugmanni...beats me. Ég fór eftir ráið Jósefs og var ekkert að mingla við þessa vafasömu gaura, enda með tiltölulega rauðara hár en Garðar! Daginn eftir var svo massívur timburmenni(...eða á ungversku "masjnarpovs"), enda mikið skálað(...á ungversku "ekki-sjeika-der", hljómar eins og "Dont shake it",hehe) ungverska Rocky Cellar bjórnum sem við drukkum, fyndið nafn, hehe. Fokkin gott kvöld, eða á ungversku, "fossa" kvöld. Maður lærði fullt marrr, verður aðeins að monta sig,hehe. Daginn eftir var svo farið í túr um Budapest með þar sem Lára var alveg að farast úr stressi því hún hélt hún væri ekki að standa sig í stykkinu en við fullvissuðum hana um að betra gæti þetta ekki orðið. Sáum hetjutorgið og höllina og allt heila klabbið, rosalega flott. Síðan um kvöldið fórum við bara í bíó enda eftir okkur eftir kvöldið áður, sáum Million Dollar Baby...sem að mér satt að segja fannst landregin og ekkert svo skemmtileg. Seinasta daginn okkar í Budapest sem var í gær fórum við strákarnir svo í eitt að frægasta spa-inu í Budapest og böðuðum okkur í heitum og ísköldum pottum, gufubað og nudd fyrir komandi átök.

Nú erum við svo komnir til Búkarest og er ég feginn að við hittum hann Paul hinn skoska á lestarstöðinni, hann hefur búið í Rúmeníu og sagði okkur allt um hvernig landið er. Hann var reyndar búinn að reykja gras í allan daginn með hljómsveitinni sinni og ruglaðist því aðeins í hvaða síson væri...sagði að það myndi verða snjór um allt, allar sundlaugar væru fylltar af snjó og einnig sagði hann að það myndi verða hundaskítur um allt...sem er ekki alveg búið að passa...fínt veður hérna og ekki búnir að sjá neina snjókalla baðandi sig í sundlaugum. En hann reddaði okkur alveg með taxann hingað á hostelið enda vanur maður hérna.(Úúúú, Valur var að koma með bjór úr búðinni,mmm:). Rosalegt að sjá fátæktina á leiðinni hingað frá Búdapest (sem tók 16 klukkutíma btw), rusl út um allt og hestvagnar ennþá í notkun hérna, allaveganna í sveitinni. Við erum milljónamæringar í þessu landi því að 1 Evra jafngildir 35.000 af gjaldmiðlinum hérna, ég tók 2 milljónir úr hraðbankanum í dag og borgaði eina milljón fyrir gistinguna hjérna fyrir tvær nætur, 300.000 út að borða pizzu, 2 kók og ís...tipsuðum þjóninn 200.000 kell...allt of lítið marrr, hehe;)Fínt Hostel sem við erum á, 12 evrur nóttin og 2 tímar af interneti fylgir með, morgunmatur og þvegið af manni skítugu nærbuxurnar...heitir Hostel Elvis en ætti að heita Hostel Mamma miðað við það sem við fáum...svo er sjónvarpsherbergi og fullt af DVD myndum úr að velja. Búnir að mingla við nokkra evrópufara hérna, ótrúlegt hvað er mikið að lónerum að ferðast hérna, einn að koma frá Tyrklandi, einn frá Búlgaríu og svo tveir svem voru með okkur í lestinni í dag. Þetta fólk er reyndar á aðeins hærri túristaklassa en við verð ég að segja, þegar þau voru að tala um hvar þau væru búin að vera...seinustu mánuði nýtti ég mér lærdóm minn úr Hávamálum og sat bara hjá í staðin fyrir að reyna eitthvað að bæta inn í samræðurnar...spurði bara spurninga um þeirra ferðir. Gátum reyndar sagt þeim um staðina sem við erum búnir að fara til sem þeir eru fara til, allir að fara í öfuga átt miðað við okkur, enda búin að vera einhverstaðar austur í rassgati?Skemmtilegar sögur frá þeim samt! Erum að fara út með nokkrum þeirra í kvöld jafnvel, verðum að kíkja á næturlífið hérna, enda með tvo sem hafa báðir búið hérna þannig við erum alveg safe.

En framundan er það Búlgaría þar sem við ætlum að skella okkur á snjóbretti, síðan er það bara eftir planinu og verða komnir til Zagreb þann 27. og sjá Ísland - Króatíu keppa í undankeppni HM. Eins fáránlega og það hljómar þá hittum við íslenskan strák í pínulítilli búð rétt hjá þar sem við gistum (ekki í miðbænum nota bene) sem gaf okkur númerið hjá einhverjum KSÍ gaur sem er að skipuleggja þetta og verður örruglega stuð þar, höfum heyrt að KSÍ spari ekkert í partýjum eftir svona leiki! Áfram Ísland!!! Síðan er það bara sóla sig í strandbænum Split í Króatíu í 5 daga, Mílanó, Nice og þá er ferðin búin...en alveg 19 daga í það, þannig nóg eftir!!! Já ég náði nú bara að segja ykkur fullt, reyni að skrifa fljótt aftur. Kveðjur frá mér, Garðari og Val til allra á Íslandi og allra hinna sem geta náttla ekki lesið þetta...en samt kveðjur til þeirra!

Puzsi Puzsi


» 111 hafa sagt sína skoðun

14.03.2005 21:22:51 / joimagg

Vika af Interraili

Sael veridi, nu er madur buinn ad vera i viku i Interraili og er thetta nett gaman og um leid fokkin erfitt.Erum bunir ad ganga svo mikid ad halfa vaeri meira en helviti. En thar sem madur er ekki buinn ad hafa mikinn tima til thess ad blogga tha aetla eg ad nyta thennan eina dag herna i Bratislava, Slovakiu ad gera thad...thar sem thetta er nu ekkert svakalega spennandi stadur. 6.mars Gardar flaug inn til Prag thar sem eg og Valur vorum bunir ad vera seinustu vikuna i kongalifinu...reyndar fengum vid badir aelupest og skitu i einn dag en tha er tha erum vid bara bunir med thann pakka, klarudum 6 klosettpappirrullur og thurftum ad bua til tvaer til ur viskustykkisrullu med thvi ad skera hana i tvennt, kallarnir.eu redda ser alltaf madur! Horfdum mikid a thyskt MTV og Eurosport...svo var a einni stod alltaf a kvoldin svona ljosblatt stripp alltaf tengt einhverri ithrott, mjog serstakt, t.d. var ein senan thannig ad settid var frekar stort artificial flotur a golfvelli, og tjellingin dansadi i kringum fanann, hehe. Uuuu, ja, thetta er ad fara i allt adra att en aetlunin var, ehemm. Allaveganna, tha forum vid thriri eiginlega bara beint upp a lestarstod thar sem ferdinni var heitid til Krakaw i Pollandi, adallega til thess ad skoda Auschwitz sem er klukkutima fra. Vid filudum okkur alveg i taetlur med bakpokana a stodinni. Eg held ad eg hafi tekid ut alla mina oheppni ferdarinnar i ferdinni til Pollands, Oheppni #1: Silgjan a bakpokanum sem fer utan um mittid og heldur ollum thunganum af hryggnum brotnadi takk fyrir. Lesarferdin var mjog hugguleg, 8 timar og las eg mikid i donsku utgafunni af Da Vinci lyklinum a minum skjaldbokuhrada a leidinni, byrjadi a henni eftir aramot...er halfnadur, ehhee. Thannig er thad ad Valur gisti ekki i Pollandi thvi hann thurfti ad fara i urgent bissnessferd til Islands i heila 10 daga ut af slattufirmanu hans...thannig ad Valur for i sina fyrstu bissness ferd og oska eg honum til hamingju. En vid fundum allaveganna thetta fina hotel vid hlidina a lestarsodinni sem kostadi kun 15 evrur nottin. Sidan var planid ad taka lest til Auscwitz en vorum svo heppnir ad madur baud okkur "an offer we couldnt resist" a lestarstodinni. Svona hljomadi linann sem hann thuldi aftur og aftur og var orruglega buinn ad laera utan ad "Hi, car to Auschwitz, english guide, free pictures, see the Schindler factory...blablabla" Hann kunni thetta helviti vel utan ad thannig ad vid urdum bara ad skella okkur a thetta, serstaklega thar sem var english guide included NOTA BENE og vid spurdum hann nokkru sinnum hvort thad vaeri potthett enskur guide med i pakkanum. Hann for svo med okkur yfir gotuna thar sem vinur hans beid i bilnum, sem var 4 dyra einkabil btw. Vid spurdum solumanninn hvort ad thetta vaeri guidinn okkar og hann sagdi eitthvad sem liktist ja. Vid setjumst inn i bil og gaurinn keyrir af stad, vid erum ekkert ad tala mikid en einhver brytur thognina med thvi ad spyrja hversu langt er til AW...tha bablar bilstjorinn eikka a polsku og segir svo "no ingles"...There goes our english guide. Vid gatum ekki annad en hlegid ad thessu og jatudum okkur seka um ad vera teknir i thurra boruna tharna. Bilferdin var mjog serstok, fyrst toludum vid saman um hitt og thatta en eftir thvi sem vid vissum ad lida for a komu okkar til AW tha haettum vid eiginlega ad tala og fann madur sma svona fidrildi i maganum...othaegilegt fidrildi. Enntha nu eru kransar vid veginn alla leidina fra Krakaw til AW... Asskotinn, tjellingin er ad loka stadnum herna, verd ad halda afram i Budapest a morgun...lofa thvi! Bless i bili

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.03.2005 17:25:53 / joimagg

Óvæntur endir

Hérna sit ég á internetcafé í Prague með Val, við erum búnir að vera hérna síðan á sunnudag...af hverju, þið fáið að heyra söguna.

Ég og "ónefndur vinur" vorum reknir í lýðháskólanum Grundtvigs Hojskole einni viku áður en við áttum að hætta.  Þú hugsar þá kannski að við hljótum að hafa gert eitthvað rosalegt af okkur, að skólastjórinn gat ekki hugsað sér að hafa okkur innan veggja skólans degi lengur...það er undir þér sjálfum að dæma.

Staðreynd: Eftir jól þá er búið að vera mjög lítið af djammi í skólanum okkar eftir að nýjir krakkar komu í skólann og gamlir hættu.  Þessi nýji hópur var andstæðan við allt sem við kynntumst fyrir jól.  Annað hvort var þetta fólk sem að var komið þarna eingöngu til þess að læra og ekkert djamma, eða þá snarklikkað lið eins og Ronny; fyrrum Bandito meðlimur og tattoeraður um allan líkama, hausinn með OG Tommy; laminn af dönsku lögreglunni fyrir nokkrum mánuðum, gengur með morfín á sér til þess að taka stanslausan sársauka í burtu, hann má ekki drekka áfengi út af því þannig í staðinn tók hann sýru.  Fínustu drengir báðir tveir þegar maður kynntist þeim.  Sérstaklega Ronny, á þessum tveimur mánuðum sem hann er búinn að vera í skólanum náði hann að plata 5 stelpur af danskri dating síðu sem heitir hotpeople.dk til þess að heimsækja hann, við fengum aldrei að sjá þessar stelpur því það var bara farið beint upp á herbergi og úti er ævintýri.  En hvað með það, berum aðeins saman skólann fyrir jól og eftir jól, fyrir jól var nánast alltaf partý fim, fös, lau og mjög skemmtilegt fólk.  Núna eftir jól man ég ekki eftir einu skikkalegu fimmtudagsdjammi og aðeins nokkur góð fös og lau djömm.  Við erum alltaf búnir að þurfa að enda kvöldin með því að fara niður í Café Hoes sem er nú takmarkað góður staður en sleppur.  En á fimmtudaginn í seinustu viku virtist sem að fólk væri í partýfíling og jafnvel gæti það yfirnáttúrulega skeð að fimmtudagspartý yrði að veruleika.  Við strákarnir og netta fólkið (þau vita hver þau eru), byrjuðum á því að drekka inn á herbergi hjá Jönu og Mariu (dönsku kærustunni hans Sibba, it's official) og var maður kominn í ágætis fílíng bara.  Síðan var stefnan tekin á Hjornestuen þar sem partýin fara fram...hvað blasir við okkur, 6 manns samtals; báðar grænlesnku, klikkaða pólska, báðar ungversku og eini daninn í herberginu var Sören graðfoli.  Að sjálfsögðu voru þau himinlifandi að það bættist í partýið en satt að segja er ekki hægt að skemmta sér lengi með þessu liði, fljótt fer manni að líða eins og á mental hospital (fyrir utan Marion grænlensku krúttið).  Við urðum frekar pirraðir þar sem allir voru að tala um eitthvað partý um kvöldið í kvöldmatnum, fyrsta fimmtudagspartý eftir jól.  En síðan kemur að hinum hrikalega atburði sem varð til þess að við vorum reknir...

Þetta byrjar þannig að Valur og Garðar sækja gítar og bongótrommu og fara á Nordisk ganginn og héldu tónleika þar fyrir framan hurðina á Tutsi og Signe...þær farnar að sofa eins og allir danirnir og brjálast alveg. Þetta er klukkan 2:00.  Garðar og Valur flúðu upp á Folkemodte gang sem er gangurinn minn og plöntuðu sér í enda gangsins og héldu mótmælatónleika þar.  Ég kom svo stuttu seinna og bættist í hópinn.  Vissulega vorum við eyðileggja svefnfrið annara þarna en við vorum að mótmæla litlu djammi í skólanum.  Fólk kom og sagði okkur að hætta en maður hættir ekki í miðjum mótmælum, ekki gerðu John Lennon og Yoko Uno það, ekki fóru þau í fötin.  Eftir að hafa spilað Fram á Nótt nokkrum sinnum og Hjá þér (Exteeeended Version), þá voru gítararnir hrifsaðir af okkur og við sögðum þetta gott.  En sumum fannst þetta ekki nóg og til að gera langa sögu stutta þá endaði sakleysislegur vatnsslagur í því að ég var kýldur þrisvar sinnum í hausinn 4 cm frá eyranu og fékk risa kúlu (eigum það á ljósmynd), hausverkur næstu 4 daga eftir, sár á hné og rifnar buxur og sár á olnboga.  Hausnum á Val var skellt í jörðina af sama einstakling og var hann með verk í kjálkanum næstu daga á eftir.  Við börðum EKKI frá okkur á móti og hefndum okkur ekki á einstaklingnum sem gerði þetta enda erum við á móti ofbeldi, við erum lovers ekki fighters. Leiðinlegast er þetta fyrir hinn einstaklinginn þar sem hann VAR ágætis félagi okkar hérna...ekki lengur!

Við vorum nokkuð vissir daginn eftir að Jakob myndi kalla okkur inn á skrifstofu fyrir þessi mótmæli okkar og gefa okkur viðvörun, en það var vitað fyrirfram, fórn sem við vorum tilbúnir að færa fyrir málstaðinn.  Við vorum allir þrír kallaðir inn en Garðar fljótt sendur út, sem okkur fannst skrítið þar sem hann gerði nákvæmlega það sama og ég og Valur.  Við útskýrðum fyrir honum að nánast engin partý væru búin að vera í skólanum eftir jól og t.d. væru 3 eða fleiri nemendur að hætta út af því.  Skólanum vantaði smá "wake up" call bókstaflega ef að þau ætluðu að skemmta sér eitthvað það sem eftir var.  Ekkert meira höfðum við að segja og viðurkenndum að hafa brotið svefnrétt annara en það var partur af mótmælunum.  Hann sagði síðan að hann vildi að við færum á sunnudag fyrir þetta tiltæki okkar og að við værum með 20% fjarveru, sem er 5% frá lágmarksfjarveru...thats it. Ekki vildi hann að við færum strax í dag eins og allir aðrir sem hafa verið reknir, heldur á sunnudag...til þess að geta verið á opna laugardeginum þar sem við vorum báðir mikilvægir í tónleikum Rytmisk samspil I og II.  Ásaka hann ekki því að foreldrar allra nemanda komu og auðvitað vildi hann að allt væri með feldu.  Satt að segja langaði okkur mest að fara samstundis með rökunum sem við fengum fyrir brottrekstrinum en gerðum það einungis fyrir Mette músík kennara að vera áfram.  Í kvöldmatnum tilkynnti Jakob síðan að við værum reknir í skólanum viku áður en við ættum að hætta og ástæðurnar fyrir brottrekstrinum voru;

1) Atvikið um fimmtudagskvöldið...mótmælin

2) 20% fjarvera, 5 % frá lágmarksfjarveru

3) Að við værum báðir oft búnir að fara inn á skrifstofu til hans í vetur

Um kvöldið seinasta á laugardaginn þá héldum við báðir ræðu fyrir framan kennara, nemendur og vini og fjölskyldur nemenda sem voru í heimsókn.  Í grófum dráttum sögðum við að auðvitað yrði að vera eitthvað partýlíf í skólanum, eins og allir vita er það helmingurinn af því að vera í lýðháskóla ásamt að læra og kynnast fólki og menningu.  Einnig svöruðum við ástæðum þess að við vorum reknir eftirfarandi;

1) Fair nok, doen is doen, þetta voru mótmæli gegn partýleysi hjá nemendum skólans.  Margt slíkt hefur verið gert meirasegja eftir jól, t.d. var matsalurinn veggfóðraður með klósettpappír og Nordisk gang stöffaður með húsgögnum þannig að nemendur komust ekki út úr herbergjum sínum. Ekki var einu sinni minnst á það í neinum matmálstíma.

2) Enginn hefur verið rekinn úr skólanum fyrir minna en 50% fjarveru og alltaf hefur viðkomandi fengið viðvörun áður en svo langt var gengið að reka viðkomandi.  Ein stelpa féll yfir 50% fjarveru fyrir jól og fékk hún þá fyrst viðvörun.

3) Við erum báðir búnir að fara einu sinni áður inn á skrifstofu til Jakobs skólastjóra og var það ásamt 20 öðrum nemendum úr skólanum fyrir jól.  Það er úr lausu lofti gripið að við höfum farið "oft til til hans" eins og hann sagði.

Við vorum alls ekki ósáttir við að yfirgefa skólann en við vorum ósáttir með ástæðunni fyrir því.  Fyrir mánuði tilkynntum við Jakobi að við ætluðum að hætta fyrr í skólanum, hann sagði okkur að hann tapaði miklum styrk frá ríkinu ef við hættum og teljum við að hann hafi verið pirraður út í okkur út af því.  Einnig er þetta ekki í samhengi því að Garðar var með okkur í þessu og eiga liðir 1)-3) einnig við hann en ekki var hann rekinn.  Það bendir til þess að eitthvað meira hafi verið byggt á brottrekstrinum, eitthvað sem hann hefur ekki getað gefið sem ástæðu.  Something personal...not buisness!

En þá er þessu ævintýri okkar í Danmörku allaveganna lokið og er ekki hægt að segja annað en við höfum lært mikið, kynnst frábæru fólki frá hinum ýmsu löndum sem við eigum eftir að vera í sambandi við áfram og síðast en ekki síst skemmt okkur alveg frábærlega!  Margar góðar minningar, en við horfum fram á við því að nú tekur við mánaðar Interrail um alla A-Evrópu hjá mér, Val og Garðari. Síðan eftir það fer ég til Kúbu í 2 vikur.  Og loks heim til Íslands...allaveganna um sinn ;)

Ég og Valur lifum konunglegu lífi hérna í Prague þar sem við gistum í íbúð sem Ía frænka og Þórir eiga, þar er sjónvarp með öllum þýskum stöðvum sem þið getið dreymt um...ásamt Eurosport og MTV þannig við erum góðir.  Síðan heimtar Þórir að við étum bara á Restaurant Reykjavík á hans kostnað þannig að við "neyðumst" víst til að gera það :-\

Þar hafiði það, lengsta færsla sem ég hef skrifað takk fyrir, en við reynum að blogga eitthvað úr Interrailinu okkar eins og við getum.

Sæonara


» 79 hafa sagt sína skoðun

22.02.2005 01:02:53 / joimagg

Stórskuldugur

Eins og sannur Íslendingur, já ég skulda ykkur eins feita færslu hérna á blogginu, þannig vinsamlegast spennið beltið og minni á að ælupokarnir eru í hólfinu fyrir framan ykkur.  Eftir rosalega helgi þá þarseinustu þar sem Hjalti og Snæbbi heimsóttu kallana.dk hérna þá vorum við hreinlega bara eftir okkur, hafði ekki einu sinni orku í að blogga.  Mig klæjar rosalega í puttana mig langar svo að skrifa um hamfarir kappanna á dvöl þeirra en má það ekki, þið verðið að ná þá á tali á næsta filliríi og spyrja þá spjörunum úr, jájá hahahaha, Gúndi ertu búinn að mjólka?  Skólinn heldur áfram sínu ágæta striki, en eitt mjög svalt sem að við gerðum á miðvikudag verður bara að skrifast á þetta blogg hér og nú.  Við fórum í vettvangsferð með “Glas og keramik” holdinu í Listaháskólann í Kaupmannahöfn.  Aðallega til að skoða glerlistina en við fengum Le Gran Tour um allan skólann, það sem ég hef að segja um túrinn er; stórir brennsluofnar, greinilega skylda að vera artie ef maður er í þessum skóla, aldrei séð jafn tjillað háskólanám, meira artie fólk, sumt ekkert allt of frítt, en held að því ljótari sem maður er, því fallegri listaverk geri maður...meikar það ekki sens, jæja, allaveganna væri það sanngjarnt.  Á ég að skrifa það...andskotinn ég læt bara vaða...þess vegna gengi aldrei fyrir mig að vera listamaður, hehehe!  Nei bíðiði, þess vegna eru Íslendingar svona lélégir listamenn, sko, kom bara ágætlega út úr þessu, haggi?  Nóg um þá þúfu, hápunktur ferðarinnar var þegar við fengum að blása í gler, það var án ef eitt það svalasta sem ég hef gert hérna í Danmörku, fyrir utan að láta vaxa hýgjung á mér.  Þetta er gert þannig að við fengum svona þykkt járnrör, dýfðum því ofan í fljótandi gler, já kærir lesendur fljótandi gler, sem var búið að bráðna þarna alla nóttina fyrir.  Svo var þetta svona lítil kúla á endanum, svo bara blásið í helvítið af mesta afli, kom þessi helvíti flotti kuðungur út úr mínu.  Koma myndir af þessu.  Svo eftir þessa vel heppnuðu glerlistarferð var listsafnið í Kaupmannahöfn skoðað, en það var hann Kræsten í Maleri sem var með þá ferð, eins og hann er nú nettur gaur þá klikkaði hann aðeins því að 70% af safninu var lokað, en það gerði ekki til.  Skoðuðum einhverja skúlptúra og svo myndir af gömlu dönsku kóngafólki sem er allt feitt og ljótt.  Þetta er búin að vera flippvika hjá sumum.  Garðar ætlaði að vera rosa sniðugur og læddist inn í herbergi mitt og Ragnars og setti fötu með ísköldu vatni upp í skápinn hjá okkur, hann er alveg við dyrnar, svo festi hann band í fötuna og hinn endann í hurðarhúninn.  Ragnar átti að vera fórnarlambið, en eins og hann er nú mikill rannsóknarlögreglumaður í sér þá var það fyrsta sem hann tók eftir þegar hann var búinn að opna 20 cm rifu á hurðinni að skápahurðirnar voru lokaðar...”þær eru aldrei lokaðar” hugsar Ragnar og verður strax grunsamlegur á svip, hann hættir við að opna hurðina og lítur upp og sér helvítis fötuna.  Payback time, Ragnar fer þá með fötuna út, fer svona 20-25 ferðir út að sækja snjó (það er allt á kafi í snjó hérna btw) og stútfyllir einkabaðherbergið hjá Garðari og Val, fyllir einnig klósettið sjálft af snjó.  Við erum ekki að tala um eitthvað lítið, það var risa snjófjall þarna inni, helvíti fyndið. Myndir af þessu koma.  Svo á fimmtudaginn þá var hérna eitthvað fillirí á fólki og þegar leið á kvöldið komust einhverjir í ham, aðallega ein stelpa sem er alltaf prúð hérna í skólanum og ekki myndi maður búast við því sem hún gerði.  Hún tók sýruflipp og gjörsamlega klósettpappírfóðraði mötuneytið hjá okkur, það eru svona stólpar í loftinu og hún hefur örruglega sótt svona 15 rúllur nirrí kjallara og kastað þeim yfir stólpana, þannig að með innan 30 cm millibili var alls staðar lafandi niður klósettpappír, allar rúllurnar kláraðar.  Þetta var hrein list hjá píunni, þegar maður labbaði í gegnum stofuna var þetta eins og að labba í gegnum draugahús, vildi helst hafa þetta svona áfram.  Eftir að strákarnir Jón og Ragnar sáu prúðustu stelpuna í skólanum gera þetta gátu þeir ekki verið minni menn og tóku eitt stykki flipp.  Herbergisgangurinn fyrir neðan minn, sem heitir Nordisk gang var gjörsamlega stöffaður eins og kalkúnn á þakkargjörðarhátið af öllum guðs gersemum.  Innst voru svona 30 stk. Af stólum pælaðir alveg upp, eins og undir sviðinu í MS fyrir þá sem hafa séð það ógeð, síðan var haldið áfram, allar stóru plönturnar í skólanum, borð í hinum ýmsu stærðum og gerðum og risastór appelsínugul leikfimisdýna úr íþróttasalnum.  Og það var stöffað alveg fram að hurðinni inn í ganginn, hreint listaverk.  Það þurfti hvorki meira né minna en hætta við morgunmat út af A) matsalurinn var ónothæfur B)Nemendur úr Nordisk gang voru fasti inn í herbergjum sínum, hehe.

 

 



Annars tók ég nú bara rólega helgi núna og skellti mér í heimsókn til Jóhönnu frænku í Sorø.  Það var helvíti gott, hjemmelaved matur, DVD, horft á þursnafótbolta (Celtic – Rangers), horft á venjulegan fótbolta (Newcastle – Chealsea) og grænt Ópal...Mmmm!  Já, ég horfði held ég á eina betri myndum sem ég hef séð; Eternal sunshine of the spotless mind.  Mæli með henni!  Nú tekur við seinasta venjulega vikan hérna í skólanum, næsta helgi er svo opin helgi þar sem allt verður sýnt fyrir gestum og svo slúttað með þemaviku vikuna eftir það.  Svo er það bara MASSÍVT lokapartý seinustu helgina og síðan yfirgefum ég, Garðar og Valur þetta land og beint í Interrail, djöll hlakkar mig til!!!

 

 



Pís át, fordi jeg skal ga og spis out...

 

PS. Ég og Valur erum með andstæða gerð af augum skv. Kræsten listmálarakennara, hee, ekki vissi maður það áður en maður kom hingað út!


» 8 hafa sagt sína skoðun

12.02.2005 17:08:52 / joimagg

Upptekinn sökum heimsóknar

Já það er aldeilis búið að vera mikið að gera hérna hjá Köllunum.dk síðastliðið því að Hjalti og Snæbjörn ákváðu að kíkja í heimsókn til okkar. Þeir komu núna á miðvikudag og verða fram á sunnudag og var þeim lofað skemmtilegheitum hvert kvöld.  Byrjaði á rólegu tjitt tjatti á miðvikudag en það var samt tekið vel á öldrykkjunni, það sem átti að vera róleg kvöldstund endaði með því að Valur braut eina billiardkjuðann sem er eftir í hita leiksins þannig ekkert pool næstu daga.  Já heimsókn þeirra strákanna er búin að vera vítamínsprauta í djammið hérna því að maður man nú hvernig fyrstu dagarnir okkar voru hérna. Og á fimmtudag var tekið hresslega á því, ég ákvað að prufa nýtt vín, svona fernuhvítvín, það svínvirkaði svona á mig að ég man nánast ekki neitt eftir því kvöldi. Við fórum að á aðalspaðastaðinn hérna í Hillerod, Cafe Hoe's, þið heyrðuð rétt, en ekki misskilja, þetta er bara venjulegur dansstaður af B-klassa, ekkert vændi þarna.  Ég labbaði víst einn heim um 4 leytið, Valur og Garðar lögðu af stað 30 mín seinna heim, en af einhverjum óskiljalegum sökum mættumst við í andyrinu á leiðinni inn í skólann, ég fór víst einhverja krókaleið. Daginn eftir vaknaði ég óvenjulega hress og sest upp í rúminu, stend upp, finn þennan svaka verk undir hælnum hægra megin og hrin niður í rúmið aftur, er búinn að vera labbandi á táberginu þar síðan þá. Þá rifjaðist upp fyrir mér að ég datt á rassinn kvöldið áður við að asnast við að hlaupa yfir einhverja litla íslagða tjörn.  Svo er það kvöldið í gær, þá var haldið til Köben, reyndum að fá borð á tveimur Jensens Bofhus en allt stútfullt, enduðum inn á þessum fína stað sem við fundum og spísuðum Steik a la Berniese.  Staðurinn var meirasegja með glæsikerru sem hægt var að sitja í og borða, æi eins og Travolta og Uma Thurman sitja í í Pulp Fiction, megakúl.  Svo fórum við á Istegade þar sem við höfðum heyrt að hægt væri að finna ódýra pöbba þar og fundum við einn helvíti nettan þar sem stór öl kostaði 300 ISK.  Til þess að lýsa því best hversu marga öllara við drukkum án þess að segja fjöldann, þá vorum við í byrjun kvöldsins að tefla við hvorn annann en í endann vorum við að skella uppúr sögum úr sveitinni, ég, Valur, Snæbjörn og Hjalti sáum um sögurnar hinum borgarbörnunum til mikillar skemmtunar, hehe. Ein skemmtileg var af Hjalta þegar hann þurfti að sækja nýborinn kálf upp á tún, eins og við sveitakallar vitum þá eru mömmurnar mjög móðursjúkar eftir að vera nýbúnar að bera og þurfti Hjalti að hlaupa heim með slímugan kálfinn í fanginu á milljón með brjálaða belju eltandi sig, just picture it. Önnur var frá Val þar sem bóndinn á bænum dýfði tveim hundum ofan í ískallt vatnskar og öskraði á þá því þeir voru að slást, kaldir þessir bændur. Allaveganna, þá fengum við sms frá Miu, einni vanri sem er í skólanum um hvert við ættum að fara næst, það voru margir möguleikar í boði allt eftir því hvernig stemmningu við vildum, þetta voru möguleikarnir

1. Fancy people - Staður: Sevilla hjá Magasin

2. Great DJ's - Staður: Welovehouse á Nørregade

3. Casual People - Staður: Vega á Engehavevej

4. Drunk Highschool People - Staður: Australian Bar á Studiestræde

5. Pop danceclub - Staður: Park á Østerbrogade

Auðvitað varð númer 4. fyrir valinu, ekki erfitt val hjá strákunum.  Við fundum loks staðinn þótt að einn "Free bar" staður hafi freistað okkur, en ekki var tónlistin góð þaðan.  Þegar við loks komumst á þennan Australian Bar var þetta líka svona helvíti flottur staður, hvert sem maður leit voru "Warning, Kangaroos next 10 km" skilti og Foster's plagöt, þó að ég snerti ekki þann viðbjóðslega bjór. Það var líka þetta fína útsýni af stúlkum fyrir strákana í veiðigöllunum, ég var umboðsmaður þeirra þetta kvöld, reyndi að dansa áberandi á dansgólfinu til að laða stelpurnar að hjörðinni okkar og síðan þegar þær nálguðust leiðbeindi ég þeim að þeim rétta fyrir viðkomandi hverju sinni.  Ég og Garðar tókum þetta líka svakalega danssessíón þar sem fólk var byrjað að gapa á okkur, þetta var svona semi-brake. Og heiriði nú mig, ég fann upp nýjan dans; Hann heitir "Draw", svona byssueinvígji á dansgólfinu, gott þegar það er rólegur kafli í lagi, svo byggist upp og um leið og takturinn byrjar þá segir maður Draw, skotið úr byssunum og annar feikar kúlu í sig (ákveðið fyrirfram).  Svo var það bara McDonalds og heim, gerist ekki betra.

Bless í bili, ég er farinn að spísa pítu


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.02.2005 00:57:18 / joimagg

Hýgjungur í fæðingu

Já, þið heyrðuð rétt, þar sem maður verður ekkert að kyssa neitt næstu 2 mánuðina allaveganna þangað til ég fer til Kúbu, já sem btw er nokkurn vegin Mission GO núna, þá hef ég ákveðið að safna í hýgjung.  Ég hef aldrei athugað hversu mikið þetta blessaða skegg verður síðan maður byrjaði að raka sig...í fyrra...nei asskotinn...þannig það er smá mönun á sjálfan mig núna.  Að raka mig ekki fyrr en ég fer í Interrail sem er jú eins og þið góðir farþegar getið séð hérna út um hægri gluggann...það er að segja ef þið sitjið hægra megin...28 dagar.  Ég byggi nú ekki miklar vonir í magninu þar sem þetta er nú hálf aulalegt núna eftir viku, en það verður spennandi að sjá hvernig fer.  Til að halda áfram með þennan hársnyrtipistil þá vex blessað hárið á honum Ragnari alveg hreint gífurlega hratt, þetta er með ólíkindum, hann er að ná mér og ég er með 1 mánuð í forgjöf á hann.  Svo voru okkur að berast glóðvolgar fréttir hérna beint inn í stúdíó að Valur ætlar að taka kiwi-ið á þetta fyrir Interrail.  Ég geri það reyndar líka en það er bara inn í 2 mánaðar rútínunni minni núna, eins og ég segi alltaf...alltaf!!! "Once you go Kiwi, you never go back, cause the Kiwi never comes back".  Heyrumst aftur á sama tíma í næstu viku þar sem við fjöllum meira um hársnyrtingu Danmerkurfaranna...fyrir neðan mitti.

The Grudge, eða Grauturinn, brá nokkuð oft, doltið creepy en annars ekki góð mynd, ekkert plott.  Ef að draugar ákveða að fara drepa einhvern þá hafa þeir ástæðu, eitthvað unfinished buisness, maður lærði það í Sixth Sence.  Annars lýsi ég eftir góðri mafíósa mynd í bíóin, hvað varð um þær? 

Speki dagsins: Ef að eitthvað erfitt verkefni er fyrir höndum þér og fólk er eitthvað að efast um að þér takist það, þá segiru: "Öss, maður gerði þetta nú daglega í sveitinni sko!"  Þetta á þá greinilega bara við þá sem fóru eitthvað í sveit á yngri árum (respekt!), þannig að þið hinir aumingjarnir getið ekki notað þetta.  En sérstaklega skemmtilegt að nota þetta alveg úr samhengi eins og t.d. þegar þú tekur sjöunda Tequeela staupið þitt eða áður en þú ákveður að byggja húsið þitt á sandi.


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.02.2005 18:55:07 / joimagg

Góð Køben ferð

Fórum með skólanum á svona "Hojskule uddanelse" sýningu í gær þar sem allir helstu háskólarnir í Danmörku voru með básasýningu, þetta var í Forum þar sem ég fór á Sting.  Fullt af nammi í skálum, ég stóðst náttla ekki freistinguna og aflétti nammibanninu mínu, þar sem það er nú helgi.  Gekk berseksgang við eina nammiskálina, ætlaði að taka svona "walk-by" og lauma hendinni í skálina án þess að þurfa að tala við eitthvað kynningarfólk, átti að vera mjög smooth.  Neinei, sópaði ég ekki öllum bæklingunum af borðinu með úlpunni minni niður á gólf, Valur náði þessu á mynd...eitt rautt andlit.  Tilviljun...eða hvað, í fyrradag var ég að skoða flugskóla í Noregi á netinu, mjög flottan, var hann svo ekki bara með bás þarna...meant to be! Ég spjallaði við þá aðeins, leist vel á.  Eftir þetta fórum við heim til danskrar stelpu sem heitir Maria, hún á heima á Njálsgötu í hverfi sem heitir Islands Brygge, allar götur með íslenskum nöfnum, meirasegja Reykjavíkurgade.  Partý þar um kvöldið og það var sko tekið all hressilega á því, hvítvínsflaska kostar 220 kr. hérna, ég segi ekki meir.  Síðan leigubíll nirrí bæ þar sem var tjúttað fram á rauða nótt.  Við byrjuðum á því að fara á einn bar og áður en við vissum af var pleisið orðið stútfullt af Íslendingum, Valli Deres og eitthvað fótboltalið og svo einhverjir aðrir Íslendingar á öðru borði...manni leið bara eins og nirrí bæ heima.  Ég og Valur, sem vorum orðir vel á því, prufuðum að hafa svona treflakvöld eins og kallarnir.is, það var nett, lína kvöldsins var "Treflakvöld hjá kallarnir.dk, muldur muldur muldur", gátum reyndar ekki uppfylt seinna skilyrði hins eiginlega treflakvölds, þ.e. að nota einungis Hagkaupsgel á 199 kr. í hárið í stað hins venjulega...því við notum ekki gel.  Við fórum víst á tvo aðra staði en í mínu minni finnst mér eins og það hafi verið einn og sami staðurinn, man ekki mikið af svona smáatriðum síðan í gær af einhverjum ástæðum.  Það var smá dramatík í loftinu í gær...það má víst ekki fara á netið, jæja, sorrí að svekkja ykkur.  Planið var að gista hjá Mariu en ég og Valur beiluðum á því og löbbuðum út á Hovedbanen um 4 leitið og biðum eftir að lestirnar byrjuðu að ganga, ég sofnaði víst þar.  Síðan mesta snilld kvöldsins, sofnuðum báðir um leið og lestina var í komið, Valur vaknaði svo við Norreport við að gaur var eitthvað að pikka í mig og virtist vera gera sig tilbúin til þess að ræna okkur. Gekk svo bara í burtu, ég vaknaði ekki við þetta.  Síðan sofnuðum við aftur...og það var ekkert vaknað...fyrr að lestin var búin að fara út á endastöð (sem er okkar stopp) og komin langleiðina aftur til Köben, nánar tiltekið; aftur til Norreport.  Valur vaknaði fyrst og vakti mig með þessum orðum "Jói, við verðum að fara út, við erum búnir að fara til Hillerod og á leiðinni tilbaka núna" Ég lá í svona mínútu og horfði á skjáinn sem sýnir hvar við erum, var ekki að skilja neitt.  Lestin stoppar í svona 10 mín á endastöðinni þannig við vorum greinilega alveg knocked out í svona klukkutíma.  Fórum svo út og náðum lestinni okkar og komum heim kl. 7, venjulega tekur það 45 mín.  Valur gleymdi náttla lyklinum að herberginu sínu þannig að við sváfum í mínu og Ragnars herbergi þar sem Ragnar gisti í Köben, gekk erfiðlega að sofna því að Valur hraut eins grábjörn eftir fengitímabilið.  Hristi hann aðeins til og hann hætti og hnokraði mér svo undir sæng og búmm...tótallí át.

Fullt af nýjum myndum, t.d. myndir frá því að Ragnar tók kívíið á þetta.


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2