05.04.2005 17:43:04 / joimagg

Rómantíkin hjá Gúnda og Fífí í Feneyjum

Ég hef ákveðið að skrifa þessa færslu sem einstaklingurinn Gúndi sem er 23 ára og kærastan hans eru Garðar og Valur samansteyptir í kvenmannin Fífí sem er í stærri kantinum. Hún er fyrsta kærastann hans Gúnda og er hann doltið spenntur út af því...doltið upptjúnaður því þau eru í sinni fyrstu útlandaferð saman. Enjoy!

Já það er ekki hægt að segja annað en að við Fífí séum alveg í rómantískri ástarvímu hérna í Feneyjum...við erum búin að eiga alveg yndilslegar stundir...í gær löbbuðum við út um alla eynna og villtumst eiginlega, en Fífí var svo glögg að finna leiðina aftur að hótelinu á einhvern ævintýralegan hátt...hún er svo glögg. Eftir það fórum við upp á hótelherbergi og kúrðum aðeins upp í rúmi og skiptumst á kossum...híhíhí. Svo þurfti Fífí að fara á klósettið...þið vitið hversu lengi hún getur verið að gera númer 2, hún er alveg jafn lengi að athöfninni og við hin en svo finnst henni gott að sitja bara á setunni og lesa bók í svona 15-20 mín. Ég lét það ekki fara í mig og fylgdist bara með páfaathöfninni á BBC News á meðan...allri. Megi hann Jóhannes hvíla í friði. En jæja, um áttaleytið fórum við og fengum okkur að borða á fínum Ítlölskum veitingastað sem ég valdi...ég fékk mér pasta en Fífí fékk sér pizzu, hún bólgnar víst upp í tungunni við að borða pasta, læknarnir hafa ekki komist að af hverju. Við drukkum svo rauðvín með matnum, í anda rómantíkarinnar sem er allstaðar í loftinu hér í Feneyjum. Við vorum bæði þreytt eftir matinn þannig við fórum bara aftur upp á herbergi og lásum í bók og tókum einn Frúin í Hamborg...hún Fífí vann, hún vinnur alltaf!...hún er svo klár elskan. Svo núna í dag fórum við í sturtu um morguninn...nei ekki saman óþekktarangar...við komumst ekki bæði fyrir! Löbbuðum svo í hinn enda eyjarinnar, aðeins öðruvísi leið en í gær, keyptum okkur miða í strætóinn hérna...sem er bátur...hahaha...fannst ykkur þetta ekki sniðugt!Hérna er annar, ef maður pantar TAXA, þá fær maður leigu-bát...hahaha...bát...ekki bíl...hahaha...hmmhmm, já, þið skiljið! Hvar var ég. Já, við silgdum með bátnum yfir á aðra eyju, og síðan til baka og í gegnum hinn fræga Gran Canale sem liggur í gegnum eynna. Ohh, það var svo rómantískt, you just had to be there...you wish,hehe! Fengum okkur svo pizzu, ja, allaveganna ég, hún Fífí mín borðar nú alltaf á við tvo fullorðina menn þannig hún fékk sér tvær. Jæja, nú gef ég aðeins í, keyptum kort til að senda mömmu og pabba...og tengdó náttúrulega...hahaha, fyndið að segja þetta. Svo sátum við bara saman í sólbaði í svona klukkutíma og erum nú hérna á internetcafé...held að við verðum eitthvað hérna áfram því að Fífí er að tala við einhverjar 7 vinkonur sínar og neitar að yfirgefa staðinn...það er svosem allt í lagi því að við fáum stúdentaafslátt...hahahahaha. En ég fer bráðum að grípa í taumana...í alvöru...því að hún lofaði að horfa með mér á Juventus - Liverpool á barnum hérna við hliðina á sem byrjar eftir klukkutíma...ég þarf að gefa henni nudd í staðinn í lestinni til Nice í nótt í staðinn,híhí. En jæja ég kveð í bili...ævintýri Gúnda og Fífí halda áfram í Frakklandi...hlakka til að segja frá meiru. Fífí biður að heilsa.

Hákon skrifaði
Rauðhærðir brenna ekki !
Isabella skrifaði
....allaveganna ekki ef their eru med block ;)
Ragnar skrifaði
Blessadur Jói, góða ferð til Kúbu á morgun. Skilaðu kveðju til vitleysinganna.
Ragnar skrifaði
Ég er með hugmynd að nafni fyrir bloggið meðan þú verður á Kúbu... Flaggað í hálfa stöng: Austurríski fáninn á Kúbu. Mundu eftir baby faces.
Linda Hlín skrifaði
Þið eruð svo bilaðir... og frábærir að sjálfsögðu!!!! ;) Drullið ykkur svo heim svo við getum nú tekið Grundtvigs djamm saman!!! kv. Linda og Erna!!
Soley skrifaði
Joi minn, ertu alveg buinn ad missa thad?

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.